Hornfirska skemmtifélagið frumsýnir Bítl á Höfn laugardaginn 4. október n.k.
Þetta er tónlistarsýning þar sem hornfirskir listamenn leita í smiðju hjá Bítlunum og flytja nokkur af þeirra bestu lögum. Meðal annars munu lögin A Hard Days Night, , Back in the USSR, Lady Madonna, Come Together, While my Guitar Gently Weeps, Eleanor Rigby og Hey Jude hljóma á sýningunni og bítlastemmningin verður allsráðandi á Hótel Höfn í október
Tag Archives: Bítl
Bítl á Höfn
Laugardaginn 4. október n.k. frumsýnir Hornfirska skemmtifélagið sýninguna Bítl á Hótel Höfn. Þetta er sjöunda haustverkefni Hornfirska skemmtifélagsins á Hótel Höfn en áður hefur félagið sett upp sýningarnar Slappaðu af!, Með allt á heinu, Diskó, Rokk í 50 ár, American Graffiti og Eitís. Auk þess hefur félagið staðið fyrir blúshátíðinni Norðurljósablús árin 2006, 2007 og 2008.
Miðasala er á Hótel Höfn í síma 478-1240. Þar fást einnig upplýsingar um gistingu og ýmsa afþreyingarmöguleika sem í boði eru á staðnum.